Tilkynning frá Ríkisútvarpinu ohf.


Á morgun, 25. apríl mun Ríkisútvarpið ohf. (RÚV) óska eftir kauptilboðum í byggingarrétt á hluta lóðar að Efstaleiti 1. Tilboðsfrestur rennur út þann 29. maí, kl. 16:00. Nánari upplýsingar og gögn er að finna á www.ruv.is/lodin. Sölulýsing (útboðsskilmálar) verður aðgengileg frá 29. apríl, kl. 12:00. Lögmannsstofan Juris slf., Borgartúni 26, hefur umsjón með söluferlinu f.h. RÚV.  
Í janúar 2015 samþykktu Reykjavíkurborg og RÚV að hefja vinnu við breytingar á aðal- og deiluskipulagi og efna til hugmyndasamkeppni um svæðið. Stefnt er að blandaðri, vistvænni byggð með spennandi almenningsrýmum og heilstæðum götumyndum. Niðurstöðu er að vænta í lok júní.
Sala á byggingarrétti lóðarinnar við Efstaleiti er hluti af fjárhagslegri endurskipulagningu RÚV sem staðið hefur yfir á undanförnum mánuðum.