Reglum verðbréfasjóðsins Landsbréf –Markaðsbréf breytt


Stjórn Landsbréfa hf. hefur samþykkt breytingar á reglum fyrir verðbréfasjóðinn Landsbréf – Markaðsbréf og hefur Fjármálaeftirlitið staðfest þessar reglubreytingar. Breytingarnar felast einkum í því að:

 

  • Orðalagi í fjárfestingarstefnu sjóðsins er breytt, án þess að í því felist efnislegar breytingar.
  • Útvistuðum verkefnum rekstrarfélagsins hefur nú verið fjölgað.
  • Heimildir rekstrarfélags til töku þóknunar eru rýmkaðar.
  • Munur á kaup- og sölugengi er nú 1%. Áður var innheimt inngöngugjald við kaup í sjóðnum 0,7% og enginn munur var á kaup- og sölugengi.
  • Opnunartími sjóðsins er styttur og verður frá kl. 9.30 – 14.30 (var til 15:30)
  • Breytingar eru gerðar á 9. gr. reglnanna um útreikning á innlausnarvirði hlutdeildarskírteina til samræmis við reglugerð.
  • Breytingar eru gerðar á 10. gr. reglnanna um samruna sjóðsins við aðra sjóði í samræmi við breytingar á lögum.

 

Breytingarnar öðlast gildi þegar í stað. Reglur sjóðsins má nálgast á vefsíðu félagsins landsbref.is, en sjóðfélögum verður jafnframt sent bréf þar sem breytingarnar verða kynntar.

Frekari upplýsingar veitir Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa hf., í síma 410-2500.“