HS Orka hf. birtir árshlutareikning fyrir fyrsta ársfjórðung 2015


Stjórn HS Orku hf. samþykkti á fundi sínum í dag árshlutareikning fyrirtækisins fyrir fyrsta ársfjórðung 2015. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS og er í íslenskum krónum. Árshlutareikninginn má finna á vefsíðu fyrirtækisins http://www.hsorka.is

Helstu atriði árshlutareikningsins eru þessi:

Rekstartekjur fyrirtækisins hækkuðu um 9% og námu 2.076 milljónum á tímabilinu, samanborið við 1.899 m.kr. á fyrsta fjórðungi ársins 2014. Lækkun á virði afleiða (framtíðarvirði orkusölusamninga sem tengjast álverði) er 604 m.kr. á tímabilinu en var 708 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2014. Gengistap var 388 m.kr. á fjórðungnum, samanborið við gengishagnað upp 226 m.kr. á sama tímabili 2014.

Tap tímabilsins nam 321 m.kr. samanborið við 90 m.kr. hagnað á sama tímabili 2014. Heildartap nam var 374 m.kr. samanborið við 75 m.kr. hagnað á fyrsta ársfjórðungi 2014.

EBITDA er alls 790 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2015 en var 828 m.kr. á sama tímabili 2014.

Rekstur HS Orku hf. gengur vel þrátt fyrir  38 m.kr. eða 4,5% lækkun í  EBITDA samanborið við fyrsta ársfjórðung 2014. Tekjur jukust á milli ára um 177 m.kr. en rekstrarkostnaður hækkaði um 215 m.kr.. Tekjur hafa aukist bæði frá smásölumarkaði og frá stórnotendum.  Rekstrarkostnaður orkuvera hefur aukist nokkuð, orkukaup hafa aukist talsvert og flutningskostnaður hækkað örlítið.

Eiginfjárhlutfall 31. mars 2015 var 57,7% en var í árslok 2014 59,7%.

 

Frekari upplýsingar veitir Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku hf. í síma 855 9301.


Attachments

HS Orka Financial Statement 31 March 2015.pdf