Landsbréf hf. tilkynna hér með að stjórn félagsins tók þá ákvörðun kl. 9.15 í morgun að fresta viðskiptum með hlutdeildarskírteini í eftirtöldum sjóðum.
Er þessi ákvörðun tekin í ljósi ákvörðunar Fjármálaeftirlitsins að stöðva viðskipti með tiltekna skráða fjármálagerninga..
Sjóðirnir sem um ræðir eru:
- Landsbréf - Markaðsbréf
- Landsbréf - Eignabréf
- Landsbréf - Einkabréf B
- Landsbréf - Einkabréf C
- Landsbréf - Safnbréf 1
- Landsbréf - Sparibréf stutt
- Landsbréf - Sparibréf meðallöng
- Landsbréf – Sparibréf plús
- Landsbréf - Sparibréf verðtryggð
- Landsbréf - Sparibréf óverðtryggð
- Landsbréf – LEQ
- Landsbréf – Úrvalsbréf
Ekki er að svo komnu máli lokað fyrir viðskipti með:
- Landsbréf – Veltubréf II
- Landsbréf – Öndvegisbréf
- Landsbréf – Global Equity
- Landsbréf – Nordic 40
Gert er ráð fyrir að opnað verði að nýju fyrir viðskipti þá þegar opnað hefur verið fyrir viðskipti í kauphöll. Nánari upplýsingar veitir Helgi Þór Arason í síma 410 2500.