Skuldabréf HS Veitna hf.


Birting lýsingar

Útgefandi: HS Veitur hf., kt. 431208-0590, Brekkustíg 36, 260 Reykjanesbæ.

HS Veitur hafa birt lýsingu sem samanstendur af samantekt, verðbréfalýsingu og útgefandalýsingu, dags.  19. júní 2015. Lýsingin er birt í tengslum við umsókn um töku viðbótarútgáfu skuldabréfa í skuldabréfaflokknum HSVE  13 01 til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ Iceland hf. Lýsingin hefur verið staðfest af Fjármálaeftirlitinu í samræmi við ákvæði laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007.

Lýsingin er gefin út á íslensku. Útprentuð eintök af lýsingunni má nálgast á skrifstofu útgefanda að Brekkustíg 36, 260 Reykjanesbæ í 12 mánuði frá staðfestingu hennar. Rafræn eintök má nálgast á vefsíðu félagsins, http://www.hsveitur.is/HSCompanyInfo/HSCompanyBonds.aspx

Nafnverð útgáfu

Skuldabréfaflokkurinn HSVE 15 01, að fjárhæð kr. 2.500.000.000 að nafnvirði var seldur í lokuðu útboði í mars 2015. Skilmálar HSVE 15 01 eru efnislega samhljóða HSVE 13 01 og voru bréfin gefin út til bráðabirgða með það fyrir augum að þegar lýsing fyrir HSVE 13 01 yrði staðfest af Fjármálaeftirlitinu þá yrði flokkurinn HSVE 13 01 stækkaður og eigendum HSVE 15 01 afhent bréf í þeim flokki í skiptum fyrir sín bréf. Í kjölfarið yrði flokkurinn HSVE 15 01 felldur niður.

Áður hafa verið gefin út í flokki HSVE 13 01 kr. 5.623.865.000 að nafnvirði. Eftir stækkun flokksins verður heildarfjárhæð hans kr. 8.260.968.350 að nafnvirði.

Áætluð taka skuldabréfanna til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf.

Sótt hefur verið um töku viðbótarútgáfunnar, að fjárhæð kr. 2.637.103.350, til viðskipta og er fyrirhugað að bréfin verði tekin til viðskipta eigi síðar en 26. júní 2015.

Skilmálar skuldabréfanna

Skuldabréfin eru verðtryggð með vísitölu neysluverðs og bera fasta 3,75% vexti. Vextir og höfuðstóll greiðast með 40 jöfnum greiðslum á sex mánaða fresti, í fyrsta sinn 15. desember 2013. Útgáfudagur bréfanna var 18.apríl 2013, útgáfudagur nýju bréfanna verður eigi síðar en 24.júní 2015 og er lokagjalddagi þeirra 15.júní 2033.

Auðkenni skuldabréfaflokksins

Auðkenni skuldabréfaflokksins í viðskiptakerfi NASDAQ Iceland hf. er HSVE 13 01, ISIN númer bréfanna er IS0000023158. Skuldabréfin eru gefin út rafrænt hjá Verðbréfaskráningu Íslands hf. í 1. kr. nafnverðseiningum.

Nánari upplýsingar veitir:

Júlíus Jónsson, forstjóri HS Veitna hf.

Sími 860 5208