REG3A fjármögnun : Breyting á undirliggjandi veðandlagi, samþykki skuldabréfaeigenda


Samkvæmt útgáfulýsingu skuldabréfaflokksins REG3A 14 1 er útgefanda flokksins, REG3A fagfjárfestasjóði, kt. 431213-9900, heimilt að leyfa Reginn atvinnuhúsnæði ehf., kt. 521009-1010, að skipta út eignum í undirliggjandi veðandlagi lánssamnings milli útgefanda og Regins atvinnuhúshæðis. Undir liðnum sérstök skilyrði d) í útgáfulýsingu REG3A 14 1 kemur eftirfarandi fram:

"Í lánssamningi útgefanda við Regin atvinnuhúsnæði ehf. kemur fram að Regin atvinnuhúsnæði ehf. geti selt eignir sem standa til tryggingar með samþykki útgefanda svo lengi sem önnur veð koma í staðinn, skv. skilmálum. Fari svo að Reginn atvinnuhúsnæði ehf. óski eftir því að selja fasteignir úr veðandlaginu skal útgefandi ekki samþykkja slíka sölu nema með fyrirfram samþykki 75% skuldabréfaeigenda ef eitt eða fleiri af eftirfarandi skilyrðum eru til staðar:

  1. Reginn atvinnuhúsnæði ehf. hefur selt a.m.k. tvær fasteignir úr veðandlaginu síðastliðna 12 mánuði.
  2. Reginn atvinnuhúsnæði ehf. hefur selt samanlagt 20% eða meira af virði veðandlagsins eða fyrir séð að umrædd sala leiði til þess. Virði veðandlagsins er skilgreint í lánssamningi.
  3. Um er að ræða sölu innan samstæðu Regins hf. "

Reginn atvinnuhúsnæði hefur óskað eftir því að selja fasteignina við Þverbrekku 8, 200 Kópavogi úr undirliggjandi veðandlagi en uppreiknað matsvirði eignarinnar er um 77 m.kr. (um 0,52% af virði veðandlags). Fyrri skipti á veðum hafa haft uppsafnað umframvirði sem nemur um 35 m.kr. Reginn atvinnuhúsnæði hefur því óskað eftir því að í stað Þverbrekku 8 komi sambærileg veð í form reiðufjár eða fasteigna að frádregnu uppsöfnuðu umframvirði vegna fyrri skipta, þ.e. að virði um 42 m.kr.

Þar sem liður I hér að ofan á við, þ.e. um þriðju eign er að ræða sem skipti er út á 12 mánaða tímabili, óskar REG3A fagfjárfestasjóður eftir samþykki skuldabréfaeigenda REG3A 14 1 á ofangreindum breytingum á veðandlagi. Tilkynnt verður þegar samþykki fjárfesta liggur fyrir og REG3A fjármögnun hefur samþykkt söluna.

Nánari upplýsingar veitir Þorkell Magnússon, forstöðumaður skuldabréfa, ALDA sjóðir hf. í síma 510-1090.