Fagfjárfestasjóðurinn REG 2 Smáralind sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2013.
- Enginn hagnaður varð á rekstri sjóðsins á tímabilinu samkvæmt rekstrarreikningi.
- Hrein eign sjóðsins nam einni milljón króna samkvæmt efnahagsreikningi.
- Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf., í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á fyrri helmingi ársins 2015, efnahagi hans 30. júní 2015 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á fyrri helmingi ársins 2015, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu
Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is
Nánari upplýsingar um árshlutareikning fagfjárfestasjóðsins REG 2 Smáralind veitir Flóki Halldórsson, framkvæmdastjóri Stefnis í síma 444 7464.