Greiðslujöfnuður og erlend staða þjóðarbúsins á öðrum ársfjórðungi 2015


"Þessi tilkynning er upprunalega birt á vefsetri Seðlabanka Íslands. Hún hefur ekki verið birt opinberlega á Evrópska efnahagssvæðinu af hálfu Seðlabanka Íslands, sbr. skilgreiningu laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti.

Vísað er til vefseturs Seðlabanka Íslands http://sedlabanki.is

 

Á vef Seðlabanka Íslands hafa nú verið birt bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á öðrum ársfjórðungi 2015 og um stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins

Viðskiptajöfnuður mældist hagstæður um 21,3 ma.kr. á ársfjórðungnum samanborið við 6,3 ma.kr. fjórðunginn á undan. Vöruskiptajöfnuður var óhagstæður sem nemur 12,8 ma.kr. en þjónustujöfnuður mældist hagstæður um 54,7 ma.kr. Jöfnuður frumþáttatekna var óhagstæður um 16 ma.kr. og rekstrarframlög um 4,7 ma.kr.

 

Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 5.535 ma.kr. í lok ársfjórðungsins en skuldir 13.200 ma.kr. Hrein staða við útlönd var því neikvæð um 7.665 ma.kr. en nettóskuldir lækkuðu um 266 ma.kr. á milli ársfjórðunga. Að frátöldum innlánsstofnunum í slitameðferð námu eignir þjóðarbúsins 3.966 ma.kr. og skuldir 3.852 ma.kr. Hrein staða þannig metin var því jákvæð um 114 ma.kr. og hækkuðu nettóeignir um 87 ma.kr. á ársfjórðungnum.

Sjá hér nánari upplýsingar um greiðslujöfnuð og erlenda stöðu þjóðarbúsins á öðrum ársfjórðungi 2015.pdf