REG3A fjármögnun : Breyting á undirliggjandi veðandlagi


Í janúar 2014 gaf REG3A fjármögnun út skuldabréf, REG3A 14 1, til fjármögnunar á lánssamningi við Reginn atvinnuhúsnæði ehf. þar sem til tryggingar eru m.a. safn fasteigna í eigu Regins ativnnuhúsnæðis. Samkvæmt þeim lánssamningi er Reginn atvinnuhúsnæði heimilt að gera breytingar á veðandlagi svo lengi sem önnur sambærileg veð komi í staðinn. Slíkt þarfnast þó samþykkis REG3A fjármögnunar sem lánveitanda. Nánari upplýsingar um fyrirkomulagið er að finna í útgáfulýsingu skuldabréfaflokksins.

Reginn atvinnuhúsnæði hefur óskað eftir því að fá að selja Þverbrekku 8, 200 Kópavogi, fastanr. 206-6461 og í staðinn verði sett að veði reiðufé á veðsettum reikningi. Uppreiknað virði Þverbrekku 8 til viðmiðunar í lánssamningi er um 77 m.kr. Þá hafa fyrri skipti á veðum myndað uppsafnað umframvirði á veðandlagi sem nemur um 35 m.kr. Reginn atvinnuhúsnæði hefur því óskað eftir því að í stað Þverbrekku 8 komi sambærileg veð í form reiðufjár eða fasteigna að frádregnu uppsöfnuðu umframvirði vegna fyrri skipta, þ.e. að virði um 42 m.kr.

Um er að ræða þriðju fasteign sem skipt er út á 12 mánaða tímabili en samkvæmt útgáfulýsingu skal REG3A fjármögnun ekki samþykkja söluna nema með fyrirfram samþykki a.m.k. 75% skuldabréfaeigenda. Slíks samþykkis hefur nú verið aflað og hefur REG3A fjármögnun samþykkt ofangreinda breytingu á veðandlagi í samræmi við skilmála lánssamnings og útgefinna skuldabréfa REG3A 14 1 og veði verið aflétt.

Nánari upplýsingar veitir Þorkell Magnússon, forstöðumaður skuldabréfa, ALDA sjóðir hf. í síma 510-1090.