Yfirlýsing peningastefnunefndar - Vextir bankans hækka um 0,25 prósentur


"Þessi tilkynning er upprunalega birt á vefsetri Seðlabanka Íslands. Hún hefur ekki verið birt opinberlega á Evrópska efnahagssvæðinu af hálfu Seðlabanka Íslands, sbr. skilgreiningu laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti.

Vísað er til vefseturs Seðlabanka Íslands http://sedlabanki.is

 

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 5,75%.

Spáð er 4,6% hagvexti á þessu ári sem er um ½ prósentu meiri vöxtur en gert var ráð fyrir í ágústspá bankans og hafa hagvaxtarhorfur til næstu ára einnig batnað. Hagvöxturinn er einkum borinn uppi af innlendri eftirspurn sem talin er aukast um ríflega 7% í ár.

Verðbólga hefur reynst nokkru minni að undanförnu en spáð var í ágúst og er enn undir markmiði, sérstaklega ef horft er framhjá húsnæðislið vísitölu neysluverðs. Stafar það einkum af meiri lækkun alþjóðlegs hrávöru- og olíuverðs og hækkun á gengi krónunnar sem hefur vegið á móti auknum verðbólguþrýstingi af innlendum toga.

Verðbólguhorfur til skamms tíma eru af ofangreindum ástæðum töluvert betri en Seðlabankinn spáði í ágúst en til lengri tíma litið hafa þær lítið breyst. Því er áfram spáð að miklar launahækkanir muni leiða til þess að verðbólga fari yfir markmið er líður á næsta ár þegar dregur úr áhrifum lítillar alþjóðlegrar verðbólgu. Verðbólga mun ekki nálgast markmiðið á ný fyrr en á árinu 2018. Spáin byggist á þeirri forsendu að aðhald peningastefnunnar sé hert samhliða því að framleiðsluspenna og verðbólga aukast. Þá er einnig tekið mið af því að frumvarp til fjárlaga felur í sér nokkra slökun á aðhaldi í ríkisfjármálum að teknu tilliti til hagsveiflu.

Sterkari króna og hagstæðari alþjóðleg verðlagsþróun hefur gefið svigrúm til að hækka vexti hægar en áður var talið nauðsynlegt. Það breytir hins vegar ekki því að þörf er á auknu aðhaldi peningastefnunnar á næstu misserum í ljósi vaxandi innlends verðbólguþrýstings. Hve mikið og hve hratt það gerist ræðst af framvindunni og því hvernig greiðist úr þeirri óvissu sem nú er til staðar í efnahagsmálum. Töluverð óvissa er m.a. um miðlun peningastefnunnar um þessar mundir þar sem áhrifa óvenju lágra alþjóðlegra vaxta hefur í vaxandi mæli gætt hér á landi. Mótun peningastefnunnar mun einnig ráðast af þróun lausafjárstöðu í tengslum við losun fjármagnshafta og af því hvort öðrum stjórntækjum hagstjórnar verður beitt til þess að halda aftur af eftirspurnarþrýstingi á komandi misserum.

Vextir Seðlabankans verða þá sem hér segir:

Daglán: 7,5%

Vextir á veðlánum: 6,5%

Bundin innlán til 7 daga: 5,75%

Vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana: 5,5%