Fagfjárfestasjóðurinn REG 1 - REG 1 12 1


Þann 12. október 2012 gaf fagfjárfestasjóðurinn REG 1, kt. 680912-9390, út skuldabréf að fjárhæð kr. 5.500.000.000,-  Skuldabréfið er skráð í OMX Kauphöll Íslands undir auðkenninu REG 1 12 1.

Útgefandinn hefur ákveðið að kanna hvort að vilji eigenda skuldabréfaflokkins standi til að stækka hann.  Leiði þær viðræður til þess að áhugi sé meðal eigenda á því að stækka skuldabréfaflokkinn verður boðað til fundar skuldabréfaeigenda.  Á þeim vettvangi verða endanlegar tillögur lagðar fram og ákvörðun tekin.

Frekari upplýsingar veitir Jón Finnbogason (jon.finnbogason@stefnir.is), forstöðumaður skuldabréfa hjá Stefni hf.