REG3A fjármögnun : Breyting á undirliggjandi veðandlagi, nánari upplýsingar


Með vísan í tilkynningu þann 16. desember 2015 þar sem Reginn atvinnuhúsnæði óskaði eftir því að selja fasteignirnar við Brúarvog 1-3, fnr. 230-9730 og Rofabæ 39, fnr. 204-5264, báðar í Reykjavík, úr undirliggjandi veðandlagi skuldabréfaflokksins REG3A 14 1. Í viðhengi eru nánari upplýsingar um eignir sem óskað er eftir að fari úr veðandlagi annars vegar og þær sem koma í staðinn hins vegar.

REG3A fagfjárfestasjóður hefur óskað eftir samþykki skuldabréfaeigenda REG3A 14 1 á ofangreindum breytingum á veðandlagi. Tilkynnt verður þegar samþykki skuldabréfaeigenda liggur fyrir og REG3A fjármögnun hefur samþykkt breytinguna á veðandlaginu.

Nánari upplýsingar veitir Þorkell Magnússon, forstöðumaður skuldabréfa, ALDA sjóðir hf. í síma 510-1090.


Attachments

REG3A nánari upplýsingar