Starfslok Arnar V. Kjartanssonar sem framkvæmdastjóra FÍ fasteignafélags slhf.


 

Framkvæmdastjóri FÍ fasteignafélags slhf., Örn V. Kjartansson, tilkynnti stjórn félagsins fyrr í dag um uppsögn sína. Örn hefur verið framkvæmdastjóri FÍ fasteignafélags slhf. frá stofnun þess seint á árinu 2012. Örn mun verða stjórn félagsins innan handar um málefni þess og sinna starfi framkvæmdastjóra þar til eftirmaður hans hefur verið fundinn.

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Hannesson (

sigurdur.hannesson@kvika.is ), stjórnarformaður FÍ fasteignafélags slhf.