Reykjanesbær - Fjármál Reykjanesbæjar


Þann 9. mars 2015 birti Reykjanesbær tilkynningu þess efnis að bæjaryfirvöld ættu í viðræðum við kröfuhafa um endurskipulagningu skuldbindinga bæjarfélagsins. Í tilkynningunni kom fram að ef viðræðurnar skila ekki árangri getur komið til greiðslufalls á skuldbindingum bæjarfélagsins í framtíðinni.

Viðræður við kröfuhafa standa enn yfir. Þann 29. janúar sl. sendi Reykjanesbær kröfuhöfum Eignarhaldsfélagsins fasteignar ehf., Glitni HoldCo f.h. Ríkissjóðs Íslands, Landsbankanum hf. og Íslandsbanka hf. bréf. Í bréfinu var þessum kröfuhöfum veittur frestur til föstudagsins 5. febrúar n.k. til þess að bregðast við tillögu Reykjanesbæjar um afmörkun á skuldavanda sveitarfélagsins og niðurfærsluþörf skulda. Í bréfinu kemur einnig fram að náist ekki samkomulag um niðurfærsluþörf blasi við að óska eftir því við eftirlitsnefnd með málefnum sveitarfélaga að skipuð verði fjárhaldsstjórn.

Viðræður standa enn yfir og verður tilkynnt um niðurstöður þeirra að þeim loknum.

Nánari upplýsingar veitir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri.