Landsbréf hf. hafa í dag sent Nasdaq Iceland hf. beiðni um að hlutdeildarskírteini eftirfarandi sjóða í rekstri félagsins verði tekin úr viðskiptum á skipulegum verðbréfamarkaði Nasdaq Iceland:
Nafn sjóðs Auðkenni
Landsbréf – Markaðsbréf LBR MAB
Landsbréf – Sparibréf plús LBR SBL
Landsbréf – Úrvalsbréf LBR URB
Taka umræddra hlutdeildarskírteina úr viðskiptum mun ekki hafa nein áhrif á innlausn þeirra eða innlausnarvirði. Tilkynnt verður um afstöðu Nasdaq Iceland til umsóknarinnar þegar hún liggur fyrir.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa hf. í síma 410-2500.