Breyting á útboðsskilmálum vegna kaupa Seðlabanka Íslands á íslenskum krónum í skiptum fyrir erlendan gjaldeyri


"Þessi tilkynning er upprunalega birt á vefsetri Seðlabanka Íslands. Hún hefur ekki verið birt opinberlega á Evrópska efnahagssvæðinu af hálfu Seðlabanka Íslands, sbr. skilgreiningu laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti.

Vísað er til vefseturs Seðlabanka Íslands http://sedlabanki.is

 

Seðlabanki Íslands hefur breytt útboðsskilmálum vegna kaupa bankans á íslenskum krónum í skiptum fyrir erlendan gjaldeyri, en útboðið sem auglýst var 25. maí s.l. fer fram 16. júní 2016.

Breytingin felst í því að lengri frestur er gefinn, skv. 13. gr. útboðsskilmálanna, til þess að skila inn verðmati á annars konar aflandskrónueignum en þeim sem eru í formi reiðufjár, skuldabréfa og víxla útgefinna af ríkissjóði Íslands eða með ábyrgð íslenska ríkisins. Rennur fresturinn nú út kl. 15:00 hinn 15. júní 2016.

Aðrar efnislegar breytingar hafa ekki verið gerðar á útboðsskilmálunum.

Markmið breytingarinnar er að lengja frest sem tilboðsgjafar hafa til þess að skila inn gögnum og stuðla með því að meiri þátttöku í útboðinu.

Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569-9600.

Fylgiskjöl:

Útboðsskilmálar vegna kaupa Seðlabanka Íslands á íslenskum krónum í skiptum fyrir evrur, eins og þeim var breytt 9. júní 2016