REG3A fjármögnun : Breyting á undirliggjandi veðandlagi


Samkvæmt útgáfulýsingu skuldabréfaflokksins REG3A 14 1 er útgefanda flokksins, REG3A fagfjárfestasjóði, kt. 431213-9900, heimilt að leyfa Reginn atvinnuhúsnæði ehf., kt. 521009-1010, að skipta út eignum í undirliggjandi veðandlagi lánssamnings milli útgefanda og Regins atvinnuhúshæðis. Jafnframt er heimilt að losa reiðufé af veðsettum reikningi ef önnur veð koma í staðinn.

Þann 22. febrúar 2016 var tilkynnt um að fasteignirnar við Brúarvog 1-3, fnr. 230-9730 og Rofabæ 39, fnr. 204-5264, báðar í Reykjavík, hefði verið skipt út fyrir aðrar eignir. Við þau skipti lagði Reginn atvinnuhúsnæði ehf. til annarra fasteigna sem höfðu umframvirði sem nam um 34 m.kr. Þann 6. október 2015 hafði Reginn atvinnuhúsnæði lagt til 42 m.kr. inn á veðsettan reikning vegna breytinga á veðandlagi. Reginn atvinnuhúsnæði hefur óskað eftir því að losaðar verði 34 m.kr. af hinum veðsetta reikning í samræmi við aukin veð sem félagið hafði áður lagt til.

Í samræmi við skilmála útgáfulýsingar REG3A 14 1, samþykkir REG3A fjármögnun ofangreinda beiðni.

Nánari upplýsingar veitir Þorkell Magnússon, forstöðumaður skuldabréfa, ALDA sjóðir hf. í síma 510-1090.