Greiðslujöfnuður og erlend staða þjóðarbúsins á þriðja ársfjórðungi 2016


"Þessi tilkynning er upprunalega birt á vefsetri Seðlabanka Íslands. Hún hefur ekki verið birt opinberlega á Evrópska efnahagssvæðinu af hálfu Seðlabanka Íslands, sbr. skilgreiningu laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti.

Vísað er til vefseturs Seðlabanka Íslands http://sedlabanki.is

 

 

Á vef Seðlabanka Íslands hafa nú verið birt bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á þriðja ársfjórðungi 2016 og stöðu þjóð­arbúsins í lok ársfjórðungsins.[1]

Viðskiptajöfnuður mældist hagstæður um 100,4 ma.kr. á ársfjórðungnum samanborið við 32,5 ma.kr. fjórðunginn á undan. Þetta er mesti afgangur af viðskiptajöfnuði frá upphafi mælinga og í fyrsta sinn sem hann fer yfir 100 ma.kr. á fjórðungi. Vöruskipta­jöfn­uður var óhagstæður sem nam 22,5 ma.kr. en þjónustujöfnuður[2] mæld­ist hagstæður um 121,6 ma.kr. Jöfnuður frumþáttatekna var hag­stæður um 6,1 ma.kr. en rekstrarframlög óhagstæð um 4,8 ma.kr.

Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 4.040 ma.kr. í lok ársfjórðungsins en skuldir 3.980 ma.kr. Hrein staða við útlönd var því jákvæð um 60 ma.kr. eða sem nam 2,6% af VLF. Erlend staða þjóðarbúsins er jákvæð í fyrsta sinn frá því að mælingar hófust.[3] Nettóskuldir lækkuðu um 30 ma.kr. eða sem nam 1,3% af VLF á milli ársfjórðunga. Hrein fjármagnsviðskipti leiddu til um 129 ma.kr. bættrar erlendrar stöðu þjóðarbúsins. Þar af hækkuðu erlendar eignir um 140 ma.kr. en skuldir um 11 ma.kr. vegna fjármagnsviðskiptanna. Gengis- og verð­breytingar höfðu nei­kvæð áhrif á erlenda stöðu þjóðarbúsins um 83 ma.kr. á ársfjórð­ungnum. Gengi krónunnar hækkaði gagnvart helstu gjaldmiðlum eða að jafnaði um 6,7% miðað við  gengisskráningarvog. Mest hækkaði gengi krónunnar gagnvart sterlingspundi eða um 10,1%.

(Sjá fréttina í heild í meðf. skjali.)

 

Nánari upplýsingar veita Ríkarður Bergstað Ríkarðsson og Pétur Örn Sigurðsson á upplýsingasviði Seðlabanka Íslands í síma 569-9600.

 

 

 


[1] Sjá Hagtölur á http://www.sedlabanki.is

[2] Sjá á vef Hagstofunnar. 

[3] Tölur um eignir og skuldir þjóðarbúsins eru til frá árinu 1978. Þær er ekki fyllilega sambærilegar við þær tölur sem birtar eru nú. Sjá, Sögulegt yfirlit hagtalna um hreina erlenda skuldastöðu 1922-2000 af vef Þjóðhagsstofnunar.