Samkvæmt 80. gr. hlutafélagalaga um opinber hlutafélög er þingmönnum heimilt að sækja aðalfund RARIK með rétt til að bera fram skriflegar fyrirspurnir.
Dagskrá samkvæmt samþykktum RARIK ohf.:
- Skýrsla stjórnar félagsins.
- Staðfesting efnahagsreiknings og rekstrarreiknings fyrir næstliðið rekstrarár.
- Hvernig skal fara með hagnað eða tap félagsins á næstliðnu rekstrarári.
- Kosning stjórnarmanna.
- Kosning endurskoðanda.
- Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
- Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna fyrir störf þeirra á næstliðnu starfsári.
- Breytingar á samþykktum félagsins.
- Önnur mál.