Ársreikningur Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2016


Ársreikningur Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2016  var lagður fram í bæjarráði Fljótsdalshéraðs þann 15. mars 2017 og samþykktur og áritaður af bæjarráði og bæjarstjóra og vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn þann sama dag.

Helstu niðurstöður.

  • Afkoma af rekstri Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2016 var jákvæð um 256 millj. kr. samkvæmt samstæðureikningi sveitarfélagsins.
     
  •  Rekstrarafkoma A hluta var jákvæð um 178 millj. kr.
     
  •  Skuldahlutfall A hluta fór niður fyrir 150% á árinu 2016 og er 145% í árslok 2016.
     
  • Framlegð eða EBITDA í samstæðureikning Fljótsdalshéraðs var  jákvæð um 925 millj. kr. á árinu 2016 eða 23% í hlutfalli af rekstartekjum.  
     
  • Í A hluta nam EBITDA 649 millj. kr. á árinu 2016 eða 18% í hlutfalli af rekstartekjum.
     
  • Veltufé frá  rekstri nam 680 millj. kr. á árinu 2016 í samstæðu A- og B hluta eða 17% í hlutfalli af rekstrartekjum. 
     
  • Veltufé frá rekstri í A hluta nam 482 millj. kr. eða 14% í hlutfalli af rekstrartekjum.
     
  • Skuldir og skuldbindingar samstæðu A- og B hluta námu í árslok 2016 um 8.321 millj. kr. og lækka um 460 millj. kr. frá árinu 2015.  Skuldaviðmið skv. reglugerð um fjárhagsleg viðmið fyrir samstæðureikning A og B hluta er 181% í árslok 2016  en  skal skv. sveitarstjórnarlögum vera 150%. 
     
  • Skuldir og skuldbindingar í A hluta nema 5.167 millj. kr. í árslok 2016 og lækkuðu um 292 millj. kr. frá árinu 2015.   Skuldaviðmið A hluta er 139% í árslok 2016.
     
  • Það er markmið sveitarfélagsins að skuldaviðmiðið verði komið niður fyrir 150% árið 2019.  Afkoma ársins 2016 og þróun verðbólgu undanfarin misseri styrkir verulega að þau markmið gangi eftir á tilsettum tíma.

 

Nánari upplýsingar veita:

Björn Ingimarsson, bæjarstjóri

Guðlaugur Sæbjörnsson, fjármálastjóri

 


Attachments

Ársreikningur Fljótsdalshéraðs_signed_fyrri umræða.pdf Greinargerð með ársreikningi 2016.pdf