Veðskuldabréfasjóður ÍV - Birting ársreiknings 2016


Ársreikningur Veðskuldabréfasjóðs ÍV - fagfjárfestasjóðs er gerður í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða. Ársreikningurinn hefur að geyma rekstrarreikning og yfirlit um breytingu á hreinni eign, efnahagsreikning, yfirlit um fjárfestingar og skýringar.

Hagnaður varð af rekstri sjóðsins á árinu 2016 að fjárhæð 58,8 millj. kr. Bókfært eigið fé sjóðsins í árslok nam 889,2 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.

Fjárfestingartímabili sjóðsins lauk 26. febrúar síðastliðinn og er sjóðurinn nú að fullu fjárfestur.

Sjóðurinn er útgefandi skuldabréfaflokksins VIV 14 1 sem tekinn var til viðskipta hjá Nasdaq OMX Iceland árið 2015.

Nánari upplýsingar veita sjóðstjórar í síma 460 4700.

Attachments:

http://www.globenewswire.com/NewsRoom/AttachmentNg/74cb3a19-ea9d-41e0-ac03-fd176b8ba285


Attachments

Veðskuldabréfasjóður ÍV ársreikningur 2016.pdf