HS Veitur hf. gefa út nýjan skuldabréfaflokk – HSVE 310138


HS Veitur hf. hefur nú lokið við sölu á nýjum skuldabréfaflokk HSVE 310138 en flokkurinn er gefin út í tengslum við langtímafjármögnun félagsins vegna fjárfestinga í nýjum verkefnum.

HSVE 310138 er verðtryggt jafngreiðslubréf til 20 ára og ber 2,98% nafnvexti  með greiðslum tvisvar á ári.  Heildareftirspurn eftir skuldabréfaflokknum var 6.870 milljónir króna. Var ákveðið að taka tilboðum að nafnverði 5.500 milljónir króna.

Skuldabréfin verða gefin út rafrænt hjá Verðbréfaskráningu Íslands hf. og er útgáfudagur bréfanna 31. janúar 2018. Stefnt er að skráningu flokksins á Aðalmarkað Nasdaq Iceland hf. eigi síðar en 31. desember 2018.

 

Íslandsbanki hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna og töku þeirra til viðskipta.

 

Eftirlitsaðili skuldabréfaflokksins HSVE 310138 er Deloitte ehf.

 

Nánari upplýsingar veitir:

Júlíus Jónsson, forstjóri HS Veitna hf

Sími: 860 5208