Veðskuld slhf, fagfjárfestasjóður í rekstri Júpíter rekstrarfélags hf., birtir ársreikning sinn fyrir árið 2017.
-
Hagnaður varð af rekstri sjóðsins sem nam tæpum 369,5 milljónum króna samkvæmt rekstrarreikningi á árinu 2017.
-
Eigið fé sjóðsins nam 408,4 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi.
- Ársreikningurinn var endurskoðaður af Rýni endurskoðun ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit þeirra að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2017, efnahag hans 31.desember 2017 og breytingu á hreinni eign á árinu 2017, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða.
Nánari upplýsingar um ársreikning Veðskuldar slhf veitir starfsfólk Júpíter rekstrarfélags hf. í síma 5220010.