Ársreikningur RARIK fyrir árið 2017


Hagnaður RARIK á árinu 2017 var tveir og hálfur milljarður króna.

Samkvæmt rekstrarreikningi nam hagnaður ársins 2.507 milljónum króna sem er meira en áætlanir gerðu ráð fyrir og hækkaði um tæp 23% frá árinu 2016 þegar hagnaður ársins nam 2.040 milljónum króna. Reiknuð áhrif hlutdeildarfélagsins Landsnets breyttust verulega, en þau voru jákvæð um 670 milljónir króna, á móti því að þau voru neikvæð um 344 milljónir á árinu 2016. Heildarhagnaður að teknu tilliti til þýðingarmunar hlutdeildarfélags nam 1.906 milljónum króna.

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 4.767 milljónum króna eða 32% af veltu ársins, samanborið við 34,5% á árinu 2016. Handbært fé frá rekstri nam 3.952 milljónum króna.

Rekstrartekjur hækkuðu lítillega eða um tæplega 1,5% frá árinu 2016 og námu 14.886 milljónum króna og rekstrargjöld hækkuðu á milli ára um 4,3% og námu 11.884 milljónum króna.

Rekstrarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á árinu 2017 nam 3.002 milljónum króna sem er um 8,2% lækkun frá fyrra ári. Stöðugt gengi krónunnar og lág verðbólga gerði það að verkum að fjármagnsliðir voru heldur hagstæðari en áætlað var.  Fjármagnsgjöld umfram fjármagnstekjur námu um 706 milljónum króna, en á árinu 2016 námu þau 293 milljónum króna.

Samkvæmt efnahagsreikningi námu heildareignir RARIK í árslok 58.465 milljónum króna og hækkuðu um 743 milljónir króna á milli ára. Heildarskuldir námu 20.735 milljónum króna og lækkuðu um 853 milljónir króna frá fyrra ári. Eigið fé var 37.730 milljónir króna og er eiginfjárhlutfall því 64,5% samanborið við 62,6% í árslok 2016. Fjárfestingar ársins að frádregnu söluandvirði seldra rekstrarfjármuna námu 3.398 milljónum króna, sem er minna en áætlað var en 369 milljónum króna hærra en árið á undan.

Stjórn RARIK ohf. leggur til við aðalfund að greiddar verði 310 milljónir króna í arð til eiganda RARIK sem er Ríkissjóður Íslands.

Samstæðuársreikningur RARIK ohf. er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum. 

Horfur í rekstri RARIK á árinu 2018 eru góðar. Gert er ráð fyrir að hagnaður ársins af reglulegri starfssemi samstæðunnar verði heldur meiri en á árinu 2017 og að fjárfestingar aukist á milli ára.

 

Helstu stærðir samstæðureiknings RARIK, allar fjárhæðir í milljónum króna.

 

                               
  2017   2016   2015   2014   2013   2012   2011   2010
                               
Rekstartekjur  14.886   14.670   13.252   12.521   11.793   11.412   10.768   9.694
Rekstrargjöld  11.884   11.399   10.755   9.513   9.108   8.428   8.547   7.907
Rekstrarhagnaður 3.002   3.271   2.497   3.008   2.684   2.984   2.221   1.787
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) -706   -293   -850   -748   -867   -1.282   -1.233   56
Áhrif hlutdeildarfélags 670   -344   903   847   491   180   189   802
Hagnaður/tap  fyrir skatta 2.966   2.634   2.550   3.107   2.309   1.882   1.177   2.646
Tekjuskattur -459   -594   -330   -446   -362   -341   -164   -127
Hagnaður (Tap) 2.507   2.040   2.220   2.661   1.947   1.541   1.014   2.518
                               
Eignir samtals  58.465   57.722   57.751   48.536   46.787   44.569   37.262   37.032
Eigið fé 37.730   36.134   35.623   29.495   27.144   25.507   19.327   18.314
Skuldir 20.735   21.588   22.128   19.041   19.643   19.062   17.935   18.718
                               
Handbært fé frá rekstri 3.952   3.487   3.587   3.837   3.541   3.257   2.779   2.067
Greidd vaxtagjöld 625   727   741   649   657   630   623   842
                               
EBITDA 4.767   5.066   4.151   4.719   4.300   4.351   3.520   3.054
Vaxtaþekja 7,63   6,97   5,60   7,27   6,54   6,91   5,65   3,63
Eiginfjárhlutfall 64,5%   62,6%   61,7%   60,8%   58,0%   57,2%   51,9%   49,5%
                               
EBITDA/Velta 32,0%   34,5%   31,3%   37,7%   36,5%   38,1%   32,7%   31,5%

 

  

Ársreikningur RARIK 2017 var samþykktur á fundi stjórnar þann 28. febrúar, 2018 og heimilaði stjórn birtingu hans í Kauphöll Íslands.

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK í síma 528-9000.


Attachments

Fréttatilkynning um afkomu RARIK ohf 31.12.2017.pdf Samstæðuársreikningur RARIK 2017.pdf