Aðalfundur Sjóvá 15. mars 2018 - Endanlegar tillögur og dagskrá


Samkvæmt samþykktum Sjóvá-Almennra trygginga hf. skal a.m.k. þremur dögum fyrir aðalfund birta upplýsingar um þær tillögur og ályktanir sem lagðar verða fyrir fundinn og eftir atvikum endurskoðaða dagskrá fundarins.

Engar kröfur um tiltekin mál eða tillögur bárust frá hluthöfum innan tilskilins frests og er dagskrá aðalfundar því óbreytt frá fyrri tilkynningu félagsins þann 20. febrúar 2018. Fyrir aðalfundinn liggja því óbreyttar tillögur og ályktanir frá stjórn félagsins sbr. meðfylgjandi viðhengi.


Attachments

Dagskrá aðalfundar  15.3.2018 Tillögur stjórnar fyrir aðalfund 15.3.2018