Framboðsfrestur til stjórnar Sjóvá-Almennra trygginga hf. rann út þann 10. mars 2018. Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn á aðalfundi félagsins, sem haldinn verður fimmtudaginn 15. mars kl. 9.30 í fundarsal félagsins, Kringlunni 5, 103 Reykjavík:
Í framboði til stjórnar:
- Erna Gísladóttir, kt. 050568-2969
- Heimir V. Haraldsson, kt. 220455-5999
- Hjördís E. Harðardóttir, kt. 180464-5819
- Ingi Jóhann Guðmundsson, kt. 120169-5729
- Tómas Kristjánsson, kt. 151165-3389
Í framboði sem varamenn í stjórn:
- Garðar Gíslason, kt. 191066-5539
- Kristín Egilsdóttir, kt. 030268-5989
Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórn skipuð fimm mönnum og tveimur varamönnum. Með því að fleiri framboð bárust ekki munu framangreindir einstaklingar verða sjálfkjörnir í stjórn félagsins á aðalfundi. Nánari upplýsingar um frambjóðendur má finna í meðfylgjandi viðhengi.