Síminn hf. - Uppgjör 3. ársfjórðungs 2018 verður birt eftir lokun markaðar 30. október 2018


Kynningarfundur verður haldinn 31. október kl. 8:30

Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir þriðja ársfjórðung 2018 eftir lokun markaðar þann 30. október næstkomandi.

Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 31. október 2018 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 8:30.

Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans www.siminn.is/siminn/fjarfestar/ og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni:
https://livestream.com/accounts/11153656/events/8423882/player