Viðskiptayfirlit október 2018 – Nasdaq Iceland


Reykjavík, fimmtudagur, 1. nóvember, 2018 -- Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.  Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir október 2018 eru eftirfarandi:   

Hlutabréf:

  • Heildarviðskipti með hlutabréf í október námu 41,1 milljarði eða 1.787 milljónum á dag. Það er 13% hækkun frá fyrri mánuði, en í september námu viðskipti með hlutabréf 1.577 milljónum á dag.  Þetta er 29% lækkun á milli ára (viðskipti í október 2017 námu 2.519 milljónum á dag).
  • Mest voru viðskipti með bréf Marel (MARL), 6,8 milljarðar, Haga (HAGA), 4,6 milljarðar, N1 (N1), 4,2 milljarðar, Sýnar (SYN), 3,9 milljarðar, og Arion banka (ARION), 3,8 milljarðar.
  • Úrvalsvísitalan (OMXI8) hækkaði um 1,1% á milli mánaða og stendur nú í 1.624 stigum.
  • Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Arion banki með mestu hlutdeildina, 23,0% (24,7% á árinu), Fossar markaðar með 21,6% (12,5% á árinu) og Íslandsbanki með 17,4% (15,0% á árinu).
  • Í lok október voru hlutabréf 23 félaga skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First North á Íslandi. Nemur heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 978 milljörðum króna (samanborið við 1.002 milljarða í september).

Skuldabréf:

  • Heildarviðskipti með skuldabréf námu 104,6 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar rúmlega 4,5 milljarða veltu á dag. Þetta er 2% hækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í september námu tæpum 4,5 milljörðum á dag), og 16% hækkun frá fyrra ári (viðskipti í október 2017 námu 3,9 milljörðum á dag).
  • Alls námu viðskipti með ríkisbréf 70,0 milljörðum, viðskipti með bankabréf námu 23,3 milljörðum, og viðskipti með íbúðabréf námu 4,9 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKB 25 0612 (14,3 milljarðar), RIKB 28 1115 (14,0 milljarðar), RIKB 22 1026 (12,9 milljarðar), RIKB 31 0124 (9,5 milljarðar) og RIKS 21 0414 (6,5 milljarðar).
  • Á skuldabréfamarkaði var Íslandsbanki með mestu hlutdeildina 20,7% (16,6% á árinu), Landsbankinn með 16,6% (17,5% á árinu), og Kvika banki með 16,2% (14,4% á árinu).
  • Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 0,6% í október og stendur í 1.411 stigum.  Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) lækkaði um 0,6% en sú verðtryggða (NOMXIREAL) hækkaði um 1,2%.                                             

         

Sjá myndir í viðhengi fyrir hlutdeild kauphallaraðila á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði.

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics

#

 

Um Nasdaq

Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi á alþjóðavísu í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 100 mörkuðum í 50 löndum og knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 4,000 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 15 billjón Bandaríkjadala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/

 

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

 

Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm.

 

         Fjölmiðlar:
         Kristín Jóhanns
         kristin.johannsdottir@nasdaq.com
         868 9836


Attachments

201810.xlsx