Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2019 og árin 2020 - 2022


Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2019 og þriggja ára áætlun 2020-2022

Fimmtudaginn 1. nóvember 2018 er tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn Fjarðabyggðar fjárhagsáætlun sveitarfélagsins og stofnana fyrir árið 2019 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2020-2022.  Seinni umræðu bæjarstjórnar um fjárhagsáætlunina er áætluð 15.nóvember n.k..

Fjarðabyggð og Breiðdalshreppur sameinuðust í eitt sveitarfélag þann 10. júní á þessu ári undir nafni og kennitölu Fjarðabyggðar.  Heildarumsvif Breiðdalshrepps nam um 3% af heildarumsvifum Fjarðabyggðar áður.  Útgönguspá ársins 2018 er miðuð við rekstur beggja sveitarfélaganna allt árið 2018.

Eins og verið hefur undanfarinn ár leggur fjárhagsáætlunin áframhaldandi áherslu á velferð fjölskyldufólks í Fjarðabyggð. Fæðisgjaldskrá grunnskóla og gjaldskrá leikskóla og tónlistarskóla standast samanburð við önnur sveitarfélög, sbr. systkinaafslátt í leikskólum sem og milli frístundaheimila og leikskóla. Systkinaafsláttur leikskólagjalda er óbreyttur og er, ásamt tónlistarskólagjöldum, með því hagstæðasta sem gerist á landinu. Þá hafa þegar verið stigin fyrstu skerf í lækkun skólamáltíða í Fjarðabyggð. Þá er gert ráð fyrir auknu fjármagni til að halda áfram vinnu við snjalltækjavæðingu skólanna í Fjarðabyggð.

 Á undanförnum árum hefur aukin metnaður og  áþreifanlegur árangur  náðst í fegrun bæjarkjarnanna. Gert er ráð fyrir að verkefnum við hreinsun og fegrun bæjarkjarnanna verði áframhaldið á árinu 2019. Sorpflokkun og endurvinnsla skipar sífellt stærri sess í rekstri sveitarfélagsins og hefur aukinn flokkun úrgangs og endurvinnsla gefið góða raun á árinu 2018 og á næstu árum verður áfram lögð áhersla á þann málaflokk, enda mikilvægt að hugað sé vel að umhverfismálum.

Framkvæmdir verða töluverðar á árinu 2019 líkt og undanfarin ár. Unnið verður áfram að ofanflóðavörnum í Neskaupstað auk endurbótum og stækkunar á höfnum Fjarðabyggðar.  Þá verður hafin gerð viðbyggingar leikskólans Lyngholts á Reyðarfirði ásamt áframhaldandi uppbyggingu gatna í sveitarfélaginu. Auk þess verður unnið að endurbótum á vatnsveitu kerfum sveitarfélagsins en þar er orðinn þörf á endurbótum.  Fyrir liggur einnig að mikil þörf er á framkvæmdum og uppbyggingu innviða í Fjarðabyggð og tekur þessi tillaga að fjárhagsáætlun mið að því.

Eins og áður segir, verður aðhald í rekstri sveitarfélagsins á næstu árum og áfram verður hagræðingartækifæra leitað. Sú fjárhagsáætlun, sem hér er lögð fram, er unnin með hliðsjón af fjármálareglum og fjárhagslegum viðmiðum sveitarfélaga skv. sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011.  

Heildartekjur samstæðu A og B hluta eru áætlaðar rúmir 8 milljarðar króna á árinu 2019 en heildar rekstrarkostnaður um 7,3 milljarðar krónar. Þar af eru launaliðir um 4,3 milljarðar króna, annar rekstrarkostnaður um 2,4 milljarðar króna og afskriftir rúmur hálfur milljarður króna. Heildartekjur í A-hluta eru áætlaðar tæpir 5,9 milljarðar króna en heildar rekstrarkostnaður tæpir 5,5 milljarðar króna. Þar af eru launaliðir um 3,6 milljarðar króna, annar rekstrarkostnaður um 1,6 milljarðar króna. og afskriftir um 254 m.kr.

Rekstrarafgangur samstæðu A og B hluta fyrir fjármagnsliði er áætlaður 795 m.kr. Þar af er rekstrarafgangur A hluta 429 m.kr. Að teknu tilliti til fjármagnsliða verður rekstrarafgangur samstæðunnar 455 m.kr. en rekstrarafgangur í A hluta að fjárhæð 167 m.kr. Hrein fjármagnsgjöld samstæðu eru áætluðuð 340 m.kr. og 263 m.kr. hjá A-hluta.

Skuldir og skuldbindingar eru áætlaðar tæplega 9,2 milljarðar króna m.kr. í árslok 2019 hjá samstæðu A og B hluta og um  8,6 milljarðar króna hjá A hluta. Þar af eru reiknaðar lífeyrisskuldbindingar 2,5 milljarðar króna hjá samstæðu og rúmlega 2,3 milljarðar hjá A-hluta..

Í sjóðstreymisyfirliti er handbært fé frá rekstri í samstæðu 2019 áætlað 1.3 milljarðar króna, afborganir langtímalána eru áætlaðar 562 m.kr. og fjárfestingar 959 m.kr.  Afborganir langtímalána eru áætlaðar 379 m.kr. í A hluta.

Samkvæmt fjárhagsáætlun ársins 2019 er framlegðarhlutfall (EBIDTA) um 17% í samstæðu og um 12% í A hluta. 

Nánari upplýsingar um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar veita Karl Óttar Pétursson bæjarstjóri og Snorri Styrkársson fjármálastjóri í síma 470-9000.

Viðhengi


Attachments

Fjárhagsáætlun_2019-2022_tillaga fyrir bæjarstjón 1-11-2018 Fréttatilkynning Fjarðabyggð 2019