Arion banki lýkur víxlaútboði


Arion banki hf. lauk í dag, mánudag, útboði á víxlum til sex og fimm mánaða.  Í heild bárust 10 tilboð upp á 2.160 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 2.060 milljónir kr.

Í heild bárust 1 tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 200 milljónir kr., á flötum vöxtum á 4,85%.  Öll tilboð voru samþykkt.

Í heild bárust 9 tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 1.960 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,80% - 4,90%.  Samþykkt voru tilboð að nafnverði 1.860 milljónir á 4,85% flötum vöxtum.

Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi 20. desember næstkomandi.            

Nánari upplýsingar veitir Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, theodor.fridbertsson@arionbanki.is, s. 444 6760