Arion banki : Niðurstaða úr skilyrtu endurkaupatilboði


Fyrir liggur niðurstaða úr skilyrtu endurkaupatilboði til eigenda á EUR 300.000.000 2.500% skuldabréfaútgáfu sem er á gjaldaga í apríl 2019 (ISIN XS1400642382). Endurkaupatilboðið fól í sér tilboð bankans um að kaupa skuldabréfin til baka gegn endurgreiðslu reiðufjár og var tilkynnt um það þann 10. desember. Tilboðið var háð þeim skilmálum og skilyrðum sem lýst var í endurkaupatilboði (e. Tender Offer Memorandum) dagsettu 10. desember 2018.

Bankanum bárust gild tilboð að fjárhæð EUR 155.562.000 og voru öll tilboð samþykkt.

Nánari upplýsingar veitir Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, theodor.fridbertsson@arionbanki.is, s. 444 6760 

 

Viðhengi


Attachments

Arion_Bank_-_Results_Announcement