Arion banki verður með útboð á nýjum markflokkum sértryggðra skuldbréfaflokka ARION CB 24 og ARION CBI 26 þann 9. janúar næstkomandi.
ARION CB 24 er nýr óverðtryggður skuldabréfaflokkur með loka gjalddaga árið 2024. Skuldabréfið ber 6% nafnvexti með gjalddaga tvisvar á ári.
ARION CBI 26 er nýr verðtryggður skuldabréfaflokkur með loka gjalddaga árið 2026. Skuldabréfið ber 2% nafnvexti með gjalddaga tvisvar á ári.
Fjárfestum býðst að greiða fyrir sértryggð skuldabréf með neðangreindum flokkum verðbréfa auk hefðbundins uppgjörs í reiðufé. Verð skuldabréfanna miðast við miðju kröfubils á milli hagstæðustu viðskiptavaka við lokun markaðar á útboðsdegi.
ISIN | Flokkur |
XS0195066146 | HFF150224 |
XS0195066575 | HFF150434 |
XS0195066658 | HFF150644 |
IS0000024453 | RIKB 20 0205 |
IS0000020717 | RIKB 22 1026 |
IS0000019321 | RIKB 25 0612 |
IS0000028249 | RIKB 28 1115 |
IS0000020386 | RIKB 31 0124 |
IS0000020014 | RIKS 21 0414 |
IS0000020576 | RIKS 30 0701 |
IS0000030732 | RIKS 26 0216 |
Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka verða útboð sértryggðra skuldabréfa haldin að jafnaði fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði. Sjá nýja útgáfuáætlun fyrir árið 2019: http://wwwv2.arionbanki.is/bankinn/fjarfestatengsl/skuldabrefafjarfestar/utgafuaaetlun/
Nánari upplýsingar veitir Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, theodor.fridbertsson@arionbanki.is, s. 444 6760