Arion banki: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa


Arion banki hf. lauk í dag útboði á tveimur nýjum markflokkum sértryggðra skuldabréfa.

Heildareftirspurn í útboðinu var 6.980 m. kr. og fjöldi tilboða var 35.

Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 26 bárust 23 tilboð að nafnvirði samtals 4.840 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,10-2,40%. Tilboðum að nafnvirði 2.860 m.kr. á kröfunni 2,20% voru samþykkt. Til viðbótar verður flokkurinn stækkaður um 960 milljónir vegna verðbréfalán til viðskiptavaka. Heildarstærð flokksins verður 3.820 m.kr. að nafnvirði eftir útgáfuna.  

Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 24 bárust 12 tilboð að nafnvirði samtals 2.140 m. kr., á ávöxtunarkröfu  á bilinu 6,20-6,40%.  Tilboðum að nafnvirði 1.740 m.kr. á kröfunni 6,34%. Til viðbótar verður flokkurinn stækkaður um 960 milljónir vegna verðbréfalán til viðskiptavaka. Heildarstærð flokksins verður 2.700 m.kr eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Ísland þann 16. janúar 2019.

Nánari upplýsingar veitir Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, theodor.fridbertsson@arionbanki.is, s. 444 6760