Lykill fjármögnun: Útboð á víxlum 10. desember 2019


Lykill fjármögnun hf. efnir til útboðs á víxlum þriðjudaginn 10. desember 2019. Boðnir verða til sölu víxlar í nýjum 6 mánaða flokki LYKILL200615.

Fossar markaðir hf. hafa umsjón með útboðinu og kynna það fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu flötu vöxtum sem tekið er. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og verða skráðir í Kauphöll. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Tekið er við tilboðum til kl. 17:00 þriðjudaginn 10. desember og uppgjör viðskipta fer fram þann 16. desember 2019. Tilboðum skal skilað á netfangið utbod@fossarmarkets.com.

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr., 1. tl. a og b, 50. greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreinds víxilflokks eru birt á vefsíðu félagsins: https://www.lykill.is/starfsemi/fjarfestatengsl/

Nánari upplýsingar veita:
Daði Kristjánsson, Fossar markaðir hf., dadi.kristjansson@fossarmarkets.com, s: 840 4145
Arnar Geir Sæmundsson, forstöðumaður fjárstýringar Lykils fjármögnunar hf., arnarg@lykill.is, s: 540 1700