Klappir grænar lausnir hf.: Klappir grænar lausnir selja Klappir Litháen UAB


Klappir grænar lausnir hf. hafa gengið frá sölu á Klöppum í Litháen, Klappir Lithuania UAB, til Alexiu eignarhaldsfélags ehf. sem er að hluta til í eigu Ágústar Sindra Karlssonar, stjórnarformanns Klappa grænna lausna hf. Klappir Lithuania UAB í Litháen mun áfram markaðssetja og selja hugbúnaðarlausnir Klappa í Eystrasaltslöndunum. Það verður gert á grundvelli samstarfssamnings á milli félaganna. Salan er í samræmi við stefnu félagsins um að sala inn á erlenda markaði verði í gegnum samstarfsaðila.