S&P Global Ratings staðfestir óbreyttar lánshæfiseinkunnir Landsvirkjunar


Matsfyrirtækið S&P Global Ratings hefur staðfest lánshæfiseinkunnir Landsvirkjunar, BBB/A-2. Einkunnirnar eiga við langtíma- og skammtímaskuldir, með og án ríkisábyrgðar. Horfur eru jákvæðar.

Reykjavík, 28. febrúar 2020

Nánari upplýsingar veitir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs.

Sími 515 9000, netfang: rafnar@landsvirkjun.is