Arion banki: Breytingar á viðskiptavakt vegna sérstakra aðstæðna


Með vísan til tilkynningar Arion banka þann 06.03.2020 um viðskiptavakt á hlutabréfum bankans, hefur Arion banka borist tilkynning frá Íslandsbanka. Hefur Íslandsbanki tilkynnt að hann muni beita heimild í samningum sem heimilar honum að víkja frá skilyrðum samningsins vegna sérstakra aðstæðna, er varðar verðbil og fjárhæðir á meðan slíkt ástand varir.

Nánari upplýsingar veitir Theodór Friðbertsson, forstöðumaður fjárfestatengsla Arion banka, ir@arionbanki.is, sími 856 6760.