Arion banki: Tillaga tilnefningarnefndar og framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar


Aðalfundur Arion banka, verður haldinn í höfuðstöðvum bankans að Borgartúni 19, 105 Reykjavík, þann 17. mars. 2020, kl. 16:00

Á dagskrá fundarins er m.a. kosning stjórnar bankans. Frestur til að skila inn framboðum til stjórnar rann út 12. mars 2020, kl. 16:00.

Allir núverandi stjórnarmenn hafa boðið sig fram til áframhaldandi setu í stjórn bankans. Tilnefningarnefnd hefur farið yfir þau framboð sem bárust og metið hæði frambjóðenda. Skýrsla tilnefningarnefndar og upplýsingar um frambjóðendur er meðfylgjandi. Eftirtaldir aðilar eru í framboði til stjórnar Arion banka og leggur tilnefningarnefnd til að þeir verði kjörnir í stjórn bankans:

  • Brynjólfur Bjarnason
  • Herdís Dröfn Fjeldsted
  • Gunnar Sturluson
  • Liv Fiksdahl
  • Paul Richard Horner
  • Renier Lemmens
  • Steinunn Kristín Þórðardóttir

Varamenn:

  • Ólafur Örn Svansson
  • Sigurbjörg Ásta Jónsdóttir
  • Þröstur Ríkharðsson

Tilnefningarnefnd leggur jafnframt til að Brynjólfur Bjarnason verði kjörinn formaður stjórnar og Herdís Dröfn Fjeldsted verði kjörin varaformaður

Eftirtaldir aðilar eru í framboði til tilnefningarnefndar og eru upplýsingar um frambjóðendur til tilnefningarnefndar meðfylgjandi:

  • Júlíus Þorfinnsson
  • Sam Taylor

Nánari upplýsingar um aðalfund Arion banka hf. má nálgast á vef bankans www.arionbanki.is/gm og með því að hafa samband við Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, ir@arionbanki.is s. 856 6760.

Viðhengi


Attachments

Tillögur tilnefningarnefndar - Proposal of the Nomination Committee Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar Upplýsingar um frambjóðendur til tilnefningarnefndar