Landsvirkjun gefur út fyrsta skuldabréfið á Bandaríkjamarkaði sem tengt er við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun


Landsvirkjun hefur samið við bandaríska og breska fagfjárfesta um útgáfu skuldabréfs í gegnum lokað skuldabréfaútboð á Bandaríkjamarkaði (e. US private placement) að fjárhæð samtals 80 milljónir Bandaríkjadala (jafnvirði um 11 milljarða íslenskra króna). Útgáfan end­ur­speglar áherslur fyr­ir­tæk­is­ins á fjár­mögnun tengda sjálf­bærni, þar sem vaxtakjör skuldabréfsins eru tengd markmiðum fyrirtækisins um kolefnisbindingu og þar með Heimsmarkmiði Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun númer 13 um aðgerðir í loftslagsmálum.

Skuldabréfaútgáfunni var mjög vel tekið og var umframeftirspurn margföld. Bandarískir og breskir fagfjárfestar mæta þörfum Landsvirkjunar um fjármögnun til skamms tíma í hagstæðu vaxtaumhverfi.  Skuldabréfið er til þriggja ára og ber 2,51% fasta vexti með vaxtagreiðslum á sex mánaða fresti. Andvirði útgáfunnar verður ráðstafað til að endurfjármagna útistandandi skuldir og til almennrar fjárstýringar.

Útgáfan endurspeglar áherslur Landsvirkjunar á sjálfbæra þróun og kemur í kjölfar sjálfbærnitengds veltiláns sem samið var um árið 2019 að fjárhæð 150 milljónir Bandaríkjadala (jafnvirði um 20 milljarða króna) og útgáfu grænna skulda­bréfa árið 2018 fyrir 200 millj­ónir Banda­ríkja­dala (jafnvirði um 27 milljarða króna).


Fyrsta evrópska útgáfan tengd Heimsmarkmiðunum á lokuðum skuldabréfamarkaði í Bandaríkjunum

Landsvirkjun er fyrsti evrópski skuldabréfaútgefandinn til þess að gefa út skuldabréf tengt Heimsmarkmiðunum í gegnum lokað skuldabréfaútboð á Bandaríkjamarkaði. Þá er útgáfan með þeim fyrstu í Evrópu sem tengdar eru Heimsmarkmiðunum og undirstrikar hún frumkvæði og forystu Landsvirkjunar á þessum ört vaxandi vettvangi.

Með útgáfunni hefur Landsvirkjun skuldbundið sig til að auka kolefnisbindingu í að minnsta kosti 32.538 tonn CO2 ígilda árið 2020 (a.m.k. 2% aukning úr 31.900 tonnum CO2 ígilda árið 2019). Takist Landsvirkjun ekki að uppfylla það skilyrði munu vaxtakjör skuldabréfsins hækka um 0,1%. Er skuldbindingin því beintengd markmiðum Landsvirkjunar um að verða kolefnishlutlaus árið 2025.

Barclays var umsjónaraðili útgáfunnar. Lögfræðiráðgjafar Landsvirkjunar voru Logos og Morrison & Foerster, en alþjóðlega lögfræðistofan Greenberg Traurig var lögfræðiráðgjafi fjárfesta.


Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar:

„Við erum ánægð með aðra vel heppnaða útgáfu í gegnum lokað skuldabréfaútboð á Bandaríkjamarkaði og þann stuðning sem fjárfestar okkar sýna. Útgáfan staðfestir aðgang fyrirtækisins að fjölbreyttu lánsfé á hagstæðum kjörum. Sjálfbær þróun og umhverfismál eru kjarni í samfélagsábyrgð Landsvirkjunar og erum við því stolt af því að vera fyrsti útgefandi í Evrópu til þess að gefa út skuldabréf tengt Heimsmarkmiðunum í gegnum lokað skuldabréfaútboð á Bandaríkjamarkaði. Það styrkir Landsvirkjun í þeirri vegferð að verða kolefnishlutlaus árið 2025.“


Reykjavík, 16. mars 2020


Nánari upplýsingar veitir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs.

Sími 515 9000, netfang: rafnar.larusson@landsvirkjun.is