Arion Banki: Útboð sértryggðra skuldabréfa þann 1. apríl 2020


Arion banki verður með útboð á sértryggðu skuldabréfaflokkunum ARION CB 24 og ARION CBI 26 þann 1. apríl næstkomandi.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 8. apríl 2020.

Verðbréfamiðlun Arion banka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið miðlun@arionbanki.is fyrir kl 16:00 þann 1. apríl 2020.

Nánari upplýsingar veitir Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, theodor.fridbertsson@arionbanki.is, s. 444 6760