Tilkynning um aukaútdrátt húsbréfa til greiðslu 15. júlí 2020



Íbúðalánasjóður hefur, samkvæmt lögum um húsnæðismál nr. 44/1998, með síðari breytingum, heimild til aukaútdráttar húsbréfa. Þessi heimild er í samræmi við heimild skuldara fasteignaveðbréfa til að greiða aukaafborganir af skuldabréfum sínum eða að endurgreiða skuldina að fullu fyrir gjalddaga. Ákvæði þessa efnis hafa verið í lögum um húsnæðismál allt frá setningu laga nr. 75/1989, sem komu húsbréfakerfinu á fót.

Á þessum grundvelli hefur Íbúðalánasjóður látið fara fram aukaútdrátt. Yfirlit um hin útdregnu bréf verður að finna í Lögbirtingablaðinu 15. maí n.k. Við útdráttinn var farin sú leið að draga út húsbréf, flokk á móti flokki, á þann veg að dregin hafa verið út húsbréf sem svara beint til uppgreiðslna fasteignaveðbréfa sem skiptanleg voru fyrir húsbréf úr flokknum. Því er fullkomið samræmi milli uppgreiðslna og útdráttar, eins og lögin gera ráð fyrir.Gert er ráð fyrir að aukaútdráttum verði áfram beitt til að jafna sjóðsstreymi Íbúðalánasjóðs vegna uppgreiðslna, í samræmi við tilvitnaðar lagaheimildir.

Húsbréf úr eftirtöldum flokkum voru dregin út í þessum aukadrætti og koma til greiðslu 15. júlí 2020:

Heiti:                                           Nafnverð:

3. flokkur 96     IBH36_0115          9.020.000