Árshlutareikningur RARIK fyrstu sex mánuði ársins 2020


Hagnaður af starfsemi RARIK nam 424 milljónum króna á fyrri helmingi ársins, sem er um 66% lækkun á milli ára.

Rekstrarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á fyrri hluta ársins 2020 var 1.039 milljónir króna en var 1.616 milljónir króna á fyrri helmingi ársins 2019. Rekstrartekjur lækkuðu um 2,3% miðað fyrra ár og rekstrargjöld með afskriftum hækkuðu um 5,7% og voru hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir vegna mikilla tjóna í ársbyrjun.

Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 1.014 milljónir króna á tímabilinu, samanborið við 735 milljónir króna fyrri hluta ársins 2019. Hækkunin skýrist aðallega af gengisbreytingum.

Áhrif hlutdeildarfélagsins Landsnets voru jákvæð um 404 milljónir króna, samanborið við 538 milljónir króna á fyrri hluta síðasta árs.

Samkvæmt rekstrarreikningi var hagnaður á tímabilinu 424 milljónir króna samanborið við 1.243 milljónir króna á fyrri helmingi ársins 2019.

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 2.256 milljónir króna eða 27,6% af veltu tímabilsins, samanborið við 32,5% af veltu á sama tímabili árið áður.  Hreint veltufé frá rekstri, fyrir vexti og skatta, var 2.195 milljónir króna samanborið við 2.640 milljónir króna á sama tímabili árið 2019.

Heildareignir RARIK samkvæmt efnahagsreikningi 30. júní 2020 námu 69.450 milljónum króna og heildarskuldir námu 23.556 milljónum króna. Eigið fé nam 45.894 milljónum króna og eiginfjárhlutfall því 66% samanborið við 64% í ársbyrjun.

Fjárfestingar ársins eru áætlaðar um 7,4 milljarðar, sem er talsvert meira en undanfarin ár.

Horfur í rekstri RARIK á árinu 2020 eru ágætar, en Kórónaveiran veldur ákveðinni óvissu. Fjárhagsleg áhrif Kórónaveirunnar á rekstur RARIK  eru ekki veruleg eins og stendur, en vænta má að þau muni fylgja því hver verður framtíðarþróun efnahagslífsins hér á landi. Faraldurinn veldur áfram margvíslegri óvissu í rekstri RARIK, en allar aðgerðir miðast við að tryggja áfram öryggi í rekstrinum og að halda starfseminni eins lítið breyttri og mögulegt er.

Gert er ráð fyrir að afkoma fyrir fjármagnsliði á seinni hluta ársins verði í samræmi við áætlanir. Ekki er búist við sambærilegum áföllum vegna tjóna á seinni hluta ársins og fyrirtækið varð fyrir á fyrri hluta þess, sem voru meiri en verið hafa síðustu tvo áratugi.  Gert er ráð fyrir að heildarafkoma fyrirtækisins verði betri á seinni árshelmingi þessa árs og því jákvæð á árinu 2020.

Árshlutareikningur RARIK ohf. er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.

Helstu stærðir samstæðureiknings eru sýndar í meðfylgjandi viðhengi.

Helstu stærðir samstæðureiknings RARIK, allar fjárhæðir í milljónum króna.

  jan-jún jan-jún jan-jún jan-jún jan-jún jan-jún jan-jún 
  2020 2019 2018 2017 2016 2015 2014 
                
 Rekstrartekjur 8.170 8.365 8.354 7.182 7.399 6.633 6.428 
 Rekstrargjöld 7.131 6.749 6.643 6.115 5.757 5.370 4.770 
 Rekstrarhagnaður1.039 1.616 1.711 1.067 1.642 1.263 1.658 
 Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld)-1.014 -735 -447 -252 -446 -548 -424 
 Áhrif hlutdeildarfélags404 538 373 257 -75 354 277 
 Hagnaður/tap  fyrir skatta429 1.419 1.637 1.072 1.121 1.070 1.512 
 Tekjuskattur-5 -176 -253 -163 -239 -143 -247 
 Hagnaður424 1.243 1.384 909 882 927 1.265 
                
 Eignir samtals 69.450 67.530 63.939 57.010 60.946 48.838 46.964 
 Eigið fé45.894 42.732 38.961 36.077 35.661 30.112 28.098 
 Skuldir23.556 24.798 24.978 20.933 25.285 18.727 18.866 
                
 Handbært fé frá rekstri1.423 1.790 1.559 1.627 1.744 1.362 1.341 
 Greidd vaxtagjöld346 366 301 317 315 352 357 
                
 EBITDA2.256 2.715 2.659 1.975 2.500 2.071 2.455 
 Vaxtaþekja6,52 7,42 8,83 6,23 7,94 5,88 6,88 
 Eiginfjárhlutfall66,1% 63,3% 60,9% 63,3% 58,5% 61,7% 59,8% 
                

Árshlutareikningur RARIK fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2020 var samþykktur á fundi stjórnar þann 27. ágúst 2020.

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK í síma 528-9000.


Viðhengi



Attachments

RARIK ohf - Samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar 30-júní 2020.pdf Fréttatilkynning um afkomu RARIK ohf fyrstu sex mánuði ársins 2020.pdf