Fagfjárfestasjóðurinn Landsbréf - BÚS I: Uppsögn samnings um viðskiptavakt milli Landsbankans hf. og Landsbréfa – BÚS I


Landsbankinn hf., kt. 471008-0280 og Landsbréf hf., kt. 691208-0520, fyrir hönd fagfjárfestasjóðsins Landsbréf - BÚS I, gerðu þann 28. september 2017 með sér samning um viðskiptavakt á skuldabréfaflokknum BUS 56, útgefnum af Landsbréfum - BÚS I.  Landsbréf hf. hafa fyrir hönd fagfjárfestasjóðsins Landsbréfa - BÚS I sagt samningnum upp í dag þann 17. desember 2020 og mun uppsögnin taka gildi frá og með 1. janúar 2021.

Frekari upplýsingar veitir Ingvar Karlsson, sjóðstjóri fagfjárfestasjóðsins Landsbréf - BÚS I, í gegnum netfangið: ingvar.karlsson@landsbref.is