KLS sjóður sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2013.
- Hagnaður 236 þús. krónur varð á rekstri sjóðsins á árinu samkvæmt rekstrarreikningi.
- Hrein eign sjóðsins nam 1.802 þús. króna samkvæmt efnahagsreikningi.
- Ársreikningurinn var endurskoðaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2020, efnahagi hans 31. desember 2020 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2020, í samræmi við lög um ársreikninga.
Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is
Nánari upplýsingar um ársreikning fagfjárfestasjóðsins KLS veitir Jóhann Möller, framkvæmdastjóri Stefnis, í síma 444 7471.
Viðhengi