Veðskuld slhf.: Innborgun á höfuðstól


Með vísan í skilmála og verðbréfalýsingu VEDS2 17 01 hefur útgefandi ákveðið að nýta sér heimild til að greiða inn á höfuðstól skuldabréfsins á næsta vaxtagjalddaga sem er þann 15. júní næstkomandi. Útgefandi mun því þriðjudaginn 15. júní 2021 greiða alls 600.000.000,- króna inn á höfuðstól bréfsins. Greiðslan er tilkomin vegna afborgana og uppgreiðslu á skuldabréfum í eigu útgefanda síðustu vikur og mánuði.

Nánari upplýsingar veitir Kvika eignastýring hf. sem er rekstraraðili útgefanda, thjonusta@kvikaeignastyring.is eða í síma 522 0010.