Landsnet tekur lán hjá Norræna fjárfestingarbankanum


Landsnet og Norræni fjárfestingarbankinn (NIB) hafa skrifað undir lánasamning að fjárhæð 50 milljóna Bandaríkjadala, um 6 milljarðar króna, til að fjármagna framkvæmdir við Kröflulínu 3 og Hólasandslínu 3. Línurnar eru hluti af nýrri kynslóð byggðalínu sem ætlað er að bæta orkunýtingu, auka flutningsgetu og afhendingaröryggi rafmagns, ekki bara á svæðinu sem línurnar liggja um heldur einnig fyrir flutningskerfið  í heild sinni. 

Guðlaug Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landsnets segir lánið mjög hagstætt, sé á föstum vöxtum og til tíu ára.

„Það er ánægjulegt að það hafi gengið eftir að semja við Norræna fjárfestingarbankann um lán til að fjármagna tvö af okkar stærstu og mikilvægustu verkefnum í dag, Kröflulínu 3, sem er tenging á milli Kröflu og Fljótsdals, og Hólasandslínu 3 á milli Akureyrar og Hólasands. Línurnar eru hluti af nýrri kynslóð byggðalínu sem ætlað er að leggja grunninn að grænni orkunýtingu.  Framkvæmdir við línurnar ganga vel og hefur það verið áskorun að halda áætlun á tímum heimsfaraldurs þar sem við erum mjög háð birgjum og réttri og öruggri afhendingu á vörum og þjónustu. Okkar verkefni hjá Landsneti er að sjá öllum landshlutum fyrir öruggu rafmagni. Uppbygging, eins og nú stendur yfir, krefst mikillar skipulagningar og samræmingar auk þess sem við leitumst stöðugt að því að þróa flutningskerfið áfram á eins hagkvæman hátt og mögulegt er. Samningur sem við skrifuðum undir við Norræna fjárfestingarbankann er hagstæður og eykur hagkvæmni gagnvart viðskiptavinum okkar.“