Leiðrétting: Veðskuld slhf. : Innborgun á höfuðstól


Í tilkynningu sem send var út fyrr í dag kvað á um að Veðskuld slhf. myndi greiða alls 500.000.000,- króna inn á höfuðstól VEDS2 14 01 þann 15. ágúst 2021. Hið rétta er að greiðslan fer fram 15. september 2021. 


Með vísan í skilmála og verðbréfalýsingu VEDS2 14 01 hefur útgefandi ákveðið að nýta sér heimild til að greiða inn á höfuðstól skuldabréfsins á næsta vaxtagjalddaga sem er þann 15. september næstkomandi. Sjóðurinn mun því miðvikudaginn 15. september 2021 greiða alls 500.000.000,- króna inn á höfuðstól bréfsins. Greiðslan er tilkomin vegna afborgana af og uppgreiðslu á skuldabréfum í eigu sjóðsins síðustu vikur og mánuði.