Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022


Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2022 ásamt þriggja ára áætlun er lögð fram í bæjarráði Garðabæjar 26. október 2021.  Áætlunin verður lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Garðabæjar 4. nóvember 2021 og áætlað er að síðari umræða um áætlunina fari fram í bæjarstjórn 2. desember.

Samkvæmt áætluninni er rekstrarafgangur jákvæður fyrir A og B hluta 48 m.kr.  Gert er ráð fyrir að framkvæmdir nemi 4.168 m.kr., þar af fari um 1.800 m.kr. til byggingar Urriðaholtsskóla og leikskóla í Urriðaholti.

Gert er ráð fyrir að veltufé frá rekstri nemi 10% og skuldaviðmið verði 90,5%.

Meðfylgjandi er fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022.

Viðhengi



Attachments

Fjárhagsáætlun 2022-2025 -fyrri umræða