Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða viðbótarútgáfu úr skuldabréfaútboði


Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í LSS150434 þann 16. febrúar 2022. Uppgjör viðskipta fer fram 21. febrúar 2021.

Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það magn sem þeir hafa keypt í útboðinu. 

Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 6.770.000.000 á bilinu 0,82% - 0,98%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.850.000.000 á ávöxtunarkröfunni 0,84%. Að þessu sinni óskuðu aðalmiðlarar eftir að nýta sér kauprétt fyrir viðbót í LSS150434 fyrir ISK 145.000.000 að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 0,84% og hefur Lánasjóðurinn ákveðið að verða við þeim óskum. Heildarmagn seldra bréfa í útboðinu í LSS150434 að meðtaldri viðbótarútgáfunni er ISK 1.995.000.000. Heildarstærð flokksins að nafnvirði fyrir útboðið var ISK 101.934.152.565 en er nú ISK 103.929.152.565.

Nánari upplýsingar veitir:
Óttar Guðjónsson
Sími: 515 4949
e-mail: ottar@lanasjodur.is