Alma íbúðafélag hf.: Útgáfa á víxlum
Alma íbúðafélag hf. hefur lokið sölu á víxlum í tveimur flokkum. Víxlarnir eru óveðtryggðir til 2ja og 4ja mánaða. Seldir voru víxlar að nafnvirði 600 m.kr. á 4,95% vöxtum til 2ja mánaða og að nafnvirði 500 m.kr. á 5,25% vöxtum til 4ja mánaða.
Greiðslu- og uppgjörsdagur er þriðjudaginn 1. mars 2022.
Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu víxlanna.
Nánari upplýsingar veitir:
Sigurður Rúnar Pálsson, fjármálastjóri, í síma 848 5290 eða sigurdur@al.is